Orkusúpa

2 dl kornsafi eða vatn
Smá söl eða annar þari
1 dl spírur, s.s alfalfa eða mung eða baunaspírur
1 dl grænt grænmeti, s.s sólblómaspírur, brokkolí, lambhagasalat (eða annað eiturefnalaust kál). Einnig má nota ýmislegt grænmeti, s.s. gulrætur, sætar kartöflur, blómkál fennikel, sellerí eða það sem þið eigið í ísskápnum.
Á vextir s.s 1 epli eða 1 ein pera og 1 banani og hindber
1 avocadó

  • allt er sett í blandara nema avókadóið, og blandað vel í ca 2 mín.
  • avókadóinu bætt útí og blandað í ca 10 - 20 sek.
  • Tilbúið

í þessa súpu á að nota hugmyndaflugið, þetta er aðeins grunnuppskrift. Rétt samsetningin er: kornsafi + þari + spírur + grænt + ávöxtur + prótein. Þá fær líkaminn alla þá næringu sem á þarf að halda.