Möndlu og gulrótarsúpa

200 gr möndlur – t.d frá Rapunzel
1 hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
2 msk sítrónusafi – best að hafa hann nýpressaðann
½ ltr gulrótarsafi nýpressaður eða multi-natur safi fráVoelkel
3 vorlaukar – skornir í litla bita
1 rauð paprika – skorin í tvennt & steinhreinsuð & skorin í bita
1-2 tsk tamarisósa
smá sjávarsalt & nýmalaður svartur pipar ef ykkur finnst það vanta

  • Setjið möndlurnar & hvítlaukinn í blandara & malið smátt
  • Bætið ólífuolíu & sítrónusafa & ½ af gulrótarsafanum & vorlauknum & paprikunni útí & blandið vel í ca 3-4 mín
  • Setjið restina af safanum útí & klárið að blanda súpuna

ofaná:
1 dl þurrristað kókosmjöl
½ rauðlaukur – mjög smátt saxaður
½ papaya – afhýtt & steinhreinsað & smjög smátt saxað

  • Blandið öllu ofanáinu saman í skál & svo fær sér hver & einn

Þessi er góð fyrir augun & beinin í líkamanum þínum.
Ef þú nennir er smart að leggja möndlurnar í bleyti í sólarhring & afhýða þær & nota þær þannig en ef ekki þá notarðu þær bara beint úr pakkanum.