Bláberjasulta

3 dl bláber
½ - 1 dl sætuefni s.s maukaðar döðlur, hrísgrjónasýróp, molasse, óunninn hrásykur, hunang, epla&peru mauk svo e-h sé nefnt
smá vanilla eða það krydd sem ykkur finnst passssa við

  • bláberin eru hreinsuð & skoluð & sett í blandara
  • sætuefninu er bætt útí & þetta er maukað
  • berja-maukið er sett í pott & soðið í ca 5 – 10 mín
  • sett á glös & kælt
  • einnig er gott að setja sultuna í plastílát & þá er hægt að frysta hana – þannig geymist hún best

gangi ykkur vel
kær kveðja
Sólveig á Grænum Kosti