Fylltir tómatar
Kirsuberjatómatar - eins margir og þú þarft.

Pestó
1 hvítlauksrif
3/4 dsl. þurristaðar furuhnetur
1/2 búnt ferskt basil
1/2 búnt klettasalat
3/4 dsl. ólifuolía
2 msk. sítrónusafi
3/4 dsl. nýrifinn parmesan eða jurtaparmesan
smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar.

  • Setjið hvítlauk, furuhnetur, basil og klettasalat í matvinnsluvél og maukið.
  • Setjið maukið í skál og hrærið út í ólifuolíu, sítrónusafa, parmesan og kryddið með smá sjávarsalti og pipar.
  • Skerið lokið af tómötunum og hreinsið þá að innan með lítilli teskeið og fyllið þá svo með pestói og setjið lokið á aftur......ummmmmmmmmmmmmmmmmmm..