Carob-páskaegg

200 gr carobella
200 gr sojabella

  • brjótið plöturnar & setjið í skál & bræðið yfir vatnsbaði við vægan hita
  • hrærið í & blandið carobella & sojabellanu saman þegar það hefur bráðnað
  • nú byrjið þið að setja carobblönduna í eggjaformin, smyrjið þunnt lag í hvorn helming & setjið inn í frysti til að það storkni
  • Þetta er síðan endurtekið þar til eggið er orðið nógu þykkt til að vera tekið úr forminu
  • fyllið fótinn & setjið í frystinn til að storkna
  • þegar báðir hlutarnir eru tilbúnir er eggið fyllt með einhverju spennandi dóti, málshætti eða því sem ykkur dettur í hug
  • þegar egginu er lokað er gott að hafa í huga að ef carobblandan er of heit þá vill eggið bráðna
  • fóturinn er líka festur á með carobblöndu sem & unginn
  • skemmtilegt að skreyta eggi með glansmyndum & borðum - gefið hugmyndafluginu lausan gauminn
  • eggið er sett í frystinn til að allt nái að storkna fljótt & örugglega